Hlynur fer með rangt mál

Ég sé mig tilneyddan að blogga um rangfærslur Hlyns Hallssonar, sem heldur því fram að mbl.is hafi ekki getið þess að Sigmar Guðmundsson sagði fyrstur frá Spaugstofuhandtökugríni. Það stóð í fréttinni frá upphafi að Sigmar heði skúbbað það, og það geta allir starfsmenn mbl.is vottað og fleiri til. Ekki það að þetta sé stórfrétt. Hlynur þrjóskast við að halda þessu fram, að við höfum stolið þessu og bætir við að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem mbl.is sé að breyta fréttum sínum. Skil ekki hvað honum gengur til, einu skiptin sem einhverju er breytt er þegar eitthvað reyndist ekki eins og heimildir sögðu að væri. Hér með er þetta komið í umræðuna og leiðrétt rangfærsla Hlyns, sem sennilega hefur ekki lesið aðra málsgrein fréttarinnar áður en hann bloggaði. 

33% líkur á að Kristján eigi textann

Nú er þriðja riðli Eurovision á Íslandi lokið og eitt þykir mér merkilegra en annað við þau lög sem voru valin: Kristján Hreinsson samdi texta við níu laganna!! Við níu lög af 24, sem sagt. Mönnum er það sjálfsagt ferskt í minni að Kristján vildi láta banna lagið með Silvíu Nótt í fyrra þar sem það komst í spilun á netinu. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu. Hann hefur ekki yfir neinu að kvarta í ár, það voru 37,5% líkur á því að hann myndi eiga textann við sigurlagið. Þrjú af lögunum níu sem komust í úrslit eru með texta eftir hann, nú eru líkurnar einn á móti þremur að Kristján eigi textann við sigurlagið.  eric hawk

Annað er athyglisvert. Roland Hartwell samdi 3 af lögunum 24 og Torfi Ólafsson er einnig með 3. Það má samkvæmt reglum senda inn 3 lög á mann og þeir eru svona rosaleg tónskáld að öll lögin þóttu eiga heima í keppninni. Roland náði ekki að komast í úrslit en Torfi náði einu inn. Svo var Ómar Ragnarsson með lag í keppninni og það er eiginlega alveg eins og lagið í fyrra, nema hvað að Ómar blístrar ekki núna. Danspar eins og í fyrra og var lagið í fyrra ekki líka um eitthvað nostalgískt ástarævintýri?

188 lög bárust í forkeppni Evróvisjón, vá hvað þau hljóta að hafa verið léleg fyrst það þarf að velja öll lögin sem tveir tónlistarmenn sendu inn. Fá þeir ekki greidda ákveðna fjárhæð fyrir hvert lag, hvernig er það? Hvernig er með textahöfundinn, fær hann bara greitt frá höfundi lags einu sinni eða líka þegar lagið er valið? Getur einhver sagt mér það?

Ég vil að Eiki Hauks verði sendur út í keppnina, hann er langflottastur. Verst að hann fékk ekki almennilegt þungarokkslag að syngja. Eika út! 


mbl.is Undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eiga afganginn

Furðuleg nýbreytni er nú kynnt af Glitni banka. Hún heitir reglulegur sparnaður. EigduAfganginnAlveg nýtt fyrirbæri, eða þannig. Glitnir vill hjálpa manni að spara með því að leggja afganginn inn á sparireikning þegar maður kaupir eitthvað, ef eitthvað kostar 2500 segir maður ,,hafðu það 3000" og 500-kallinn fer inn á reikning. Þetta er svona sérstakt debetkort fyrir þá sem kunna ekki að leggja til hliðar. Og slagorðið er ,,Eigðu afganginn". Hver á afganginn annar en ég þegar ég kaupi mér eitthvað? Furðulegt slagorð. Auglýsingastofan hefur svo ákveðið að leggja áherslu á hvað er auðvelt að nota kortið. Jafnauðvelt og að líta upp. Jafnauðvelt og blablabla.  Er ekki auðveldara að millifæra 5.000 kall á sparireikning í netbanka og haka svo við ,,endurtaka í hverjum mánuði"? Í stað þess að segja 20 sinnum ,,nei hafðu það .....". Kannski ekki. Það er eitthvað skrítið í gangi í bönkunum þessa dagana...


Dýrir þeir rauðu

Ég fór í gær og keypti tómata í Melabúðinni. Missti af ódýrri búð og varð því að fara þangað. Ég gat valið milli ,,lífrænna" tómata (eru ekki allir tómatar lífrænir, eða eru hinir úr einhverjum gerviefnum?) og íslenskra. Keypti íslenska án þess að finna verðið á þeim, algengt vandamál í íslenskum matarbúðum. Fimm í pakka. Á rúmar 450 krónur. tómatar Einn tómatur á 90 kall. Bragðlaus eins og þeir íslensku eru alltaf. Um daginn keypti ég jarðarber. Fann hvergi verðið á þeim heldur, ein askja. Leit á strimilinn og komst að því að jarðarberin kostuðu tæpar 700 krónur. Taldi jarðarberin og komst að því að eitt jarðarber kostar 40 krónur. Að því ónefndu að um fjórðungur þeirra var skemmdur. En það er gott að búa á Íslandi, hreint loft, ókeypis vatn að drekka, fallegt landslag.....

Spurlock spilar með fjölskyldumann

,,Margt getur gerst á 30 dögum," segir bandaríski kvikmynda- og þáttagerðarmaðurinn Morgan Spurlock í kynningu á þáttaröðinni 30 days eða 30 dagar. Þáttaröðin er eitthvert besta skemmtiefni sem völ er á í íslensku sjónvarpi um þessar mundir og sköpunarverk Spurlocks sem sló í gegn með kvikmyndinni Super Size Me. Í þeirri mynd snæddi Spurlock eingöngu yfirstærðarmáltíðir frá McDonalds og stefndi heilsu sinni í mikla hættu. 0705_30days_350x179Í 30 days eru svipaðar tilraunir gerðar, þættirnir eru unnir án handrits og fólk látið gjörbreyta líferni sínu í 30 daga. Spurlock og unnusta hans reyndu m.a. að lifa af lágmarkslaunum í Bandaríkjunum í 30 daga. Skemmst frá að segja þá gekk það afar illa og þurftu þau að vinna myrkrana á milli til þess eins að geta keypt í matinn. Skora á íslenska þáttagerðarmenn að gera slíka tilraun hér.

Ég datt inn í einn þátt 30 days um daginn sem var sprenghlægilegur. Þar ákvað fertugur fjölskyldumaður, þriggja barna faðir, að ,,yngja sig upp" eins og það er kallað. Nú er í tísku að láta reikna út ,,raunverulegan" aldur sinn, þ.e. miðað við ástand líkamans. Fjölskyldumaðurinn komst að því að hann væri orðinn eldgamall eftir að hafa setið á rassinum í á annan áratug, ekki stundað nokkra líkamsrækt eða gætt að mataræðinu. Hann fer því á fund læknis nokkurs sem sérhæfir sig í að yngja fólk upp og sá er nú heldur skrautlegur útlits, með litað svart hár og permanent (man einhver eftir Soul Glo?). Hann sannfærir okkar mann um að taka 40 ólík efni á dag; fæðubótarefni, vítamín, testósterón og hormónalyf. Öllu þessu hrúgar maðurinn í sig í rúmar tvær vikur, nokkuð efins þó um að það sé gott fyrir líkamann. Þá sér löguleg ljóska um að hann hlaupi og syndi og teygi á. scottÖllu þessu fylgist eiginkonan með súr á svip og afbrýðisöm út í einkaþjálfarann sem setur manninum það markmið að verða jafngóður sundmaður og hann var á tvítugsaldri. Þá var hann keppnismaður í sundi. Sem er útaf fyrir sig sprenghlægilegt þar sem ljóst er að það tekur menn mörg ár að ná sínum besta tíma í sundi.

Eiginmaðurinn verður fljótlega skapvondur og uppstökkur af öllum sterunum, lifrin hættir að starfa eðlilega og endar með því að allar sáðfrumurnar drepast. Þá fyrst fær eiginkonan flog og örvæntir, nú geti þau ekki eignast fleiri börn. Eiginmaðurinn tekur því þó af meiri ró en þau hjónin fara þá fyrst að velta vöngum yfir því hvort eðlilegt sé að hrúga í sig 40 töflum á dag! Einkaþjálfari karlsins í líkamsræktarstöð einni, greinilega á sterum og ýmsu öðru sjálfur miðað við óeðlilegt útlit og fáránlega stóra vöðva, bendir karli á að töfluátið sé að bera lifrina ofurliði. Hjónin fara til skottulæknisins og segjast ætla að hætta í meðferðinni og sá horfir á þau eins og sauður og þykist hissa. Sjálfur sé hann á þessu öllu og í fínu lagi með hann!

Undir þessu öllu ómar svo reglulega fjölskyldujarmið sem er farið að einkenna flesta raunveruleikaþætti bandaríska, að allt sé þetta nú gert fyrir fjölskylduna og ekki megi skaða fjölskylduna og blablabla my family my family. Miðað við hvað eiginkonan er leiðinleg þá grunar mann allan tímann að karl ætli viljandi að gera sig ófrjóan og stinga svo af með ljóskunni þegar hann sé orðinn fitt og flottur. Og tvítugur aftur.Scott sprautar hormónum í sig

Sem sagt snilldarþættir hjá Spurlock. Síðast en ekki síst má nefna að í umræddum þætti skreppur Spurlock til Mexíkó og getur þar keypt stera og hormónalyf í apótekum eins og ekkert sé, þó það standi meira að segja á lyfjaglösunum ,,Seljist aðeins gegn framvísun lyfseðils". Einn ,,apótekarinn" fullyrðir að vöðvarnir á honum muni stækka af því einu að taka sterana, hann þurfi ekki einu sinni að hreyfa vöðvana. Vöðvarnir verði svo harðir og stórir það sem eftir er ævinnar! Ef þetta er ekki snilld þá veit ég ekki hvað er snilld. Meira af svona vitleysingum, takk.

 


Kaupþing og Cleese

Einn mesti grínleikari allra tíma, Bretinn John Cleese, ákvað að taka tilboði Kaupþings og leika ícleese auglýsingum fyrir bankann/fjárfestingafyrirtækið í fyrra. Afraksturinn er nú sýndur í sjónvarpi. Nú er Cleese einn af mínum uppáhaldsgrínistum eða grínleikurum og því alltaf gaman að sjá hann á skjánum. En Cleese má muna fífil sinn fegurri og hefur lítið sést til hans seinustu ár. Cleese er greinilega fjárþurfi ef honum finnst það spennandi að leika í auglýsingum fyrir íslenskan banka.

Ég hef reyndar bara séð eina auglýsingu, þá sem sýnir Cleese glíma við að segja Kaupþing. Skemmst frá að segja er auglýsingin ekkert fyndin og ekki Cleese bjóðandi að taka þátt í svo klisjukenndu Íslendingagríni. Vafalaust hefur hann fengið tugi milljóna króna fyrir að standa og segja nokkrar setningar. Maður trúir því varla að þarna sé sami leikari á ferð og gerði Basil Fawlty ódauðlegan í Fawlty Towers og var ein burðarstoðin í Monty Python. Nú halda margir því fram að svona sprellauglýsingar séu nauðsynlegur hluti kynningarstarfs bankanna. Og þá líka að eyða bankastjóralaunum í heilsíðuauglýsingar í Moggann sem allar eru eins utan að ólíkt fólk er á ferð. Það eina sem manni dettur þá í hug er : ,,Jæja, KBBanki orðinn Kaupþing, enn ein nafnabreytingin hjá íslensku stórfyrirtæki".

Það sem verst er við Cleese-hugmyndina er að nota hann ekki betur. Hér eru menn komnir með einn mesta húmorista Breta fyrr og síðar, manninn sem lék kjánagangsráðherrann sjálfan, og láta hann segja Kaupþing. Spurning hvort hann hafi verið spurður ,,How do you like Iceland?" og látinn borða hákarl og drekka brennivín.

Ég er viðskiptavinur Kaupþings og treysti þar fólki til að fara vel með peninga. Auglýsingaæði bankans ýtir ekki undir þá tilfinningu en sjálfsagt liggur þykk greiningarskýrsla á borði stjórnarinnar um nauðsyn þess að láta Cleese segja Kaupþing.

Bendi Monty Python aðdáendum á þessa síðu að lokum: http://www.sillywalksgenerator.com/


mbl.is Auðvelt að leikstýra John Cleese
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fatta ekki djókið

Jafnöruggt og það er að nýtt ár gangi í garð er það að fólk röfli og væli yfir áramótaskaupinu. Skaupið er auðvitað furðufyrirbæri og séríslenskt. Gamanþáttur sem allir landsmenn horfa á og krefjast þess að sé fyndinn allan tímann, ef einn brandarinn virkar ekki er skaupið ónýtt. Skelfilegt hlýtur að vera að fá það verkefni að skrifa skaupið. Eitt ráð er til handa þeim sem eiga erfitt með að horfa á skaupið án þess að hlæja stanslaust frá upphafi til enda: Drekka áfengi. Á þriðja bjór eru öll skaup fyndin.

Mér fannst skaupið núna fínt, flest var þar fyndið og svartur húmor. Svo virðist sem fólk eigi miserfitt með að átta sig á því hvenær húmor er svartur, hvenær hann flokkast undir kaldhæðni. Ég lá uppi í rúmi með nýfæddan son minn í gærmorgun og fylgdist með Sirrý og Heimi tala um allt og ekki neitt, þar á meðal skaupið. Heimi fannst það ekki gott, ekkert fyndið. Hann á rétt á því auðvitað. Sirrý fannst það gott enda var hún í því. Svo hringdu fúlir Íslendingar í þau og sögðu harmasögur af því að þeir hefðu ekki hlegið að skaupinu. Hræðilegt þegar það gerist greinilega og áramótin bara ónýt. Jon_Gnarr,,Það var verið að gera grín að öldruðum og öryrkjum," kveinaði kona ein. Sirrý reyndi að benda henni á grínið sem fælist í fordómum persónunnar sem Jón Gnarr lék, enda fordómar oft í fréttum seinni hluta árs, t.d. tengdir innflytjendum. ,,Nei, það var bara verið að gera grín að öldruðum og öryrkjum," sagði konan og minnti óneitanlega á eina af kerlingunum sem Jón Gnarr lék svo oft af stakri snilld í Fóstbræðrum. Fleiri hringdu inn, öllum fannst allt ómögulegt. Sumum fannst vanta eftirhermur, svona Spaugstofugrín sem þeir fá vikulega allt árið.

Ég segi bara húrra og áfram við hina nýju kynslóð Skaupara sem skrifaði að þessu sinni. Skaupið var afar íslenskt og mörg góð ádeilan þar á ferð. Að mínu mati stóð atriði með Þorsteini Guðmunds upp úr þar sem gert var grín að Orkuveituauglýsingunni frægu. Þar var þarft grín á ferð og hefði mátt ganga lengra og láta fleiri finna fyrir því.  Þá var Baugsmyndin góð sem og Apaplánetu-byrjunin.  Panta svona skaup fyrir næstu áramót.


Fæddur

Við Ólöf ákváðum að henda inn nokkrum myndum af fegursta manni Íslands, Ólafi Þór Helgasyni, sem fæddist í gær með hraði. Óli var bara 6 tíma að fara úr belgnum og út þó hann væri tæpar 18 merkur.

For our foreign friends, we decided to put a few photos of Olafur Thor Helgason, Icelands´most handsome man, who was born yesterday. He weighed 4,34 kg, 52 cm long. He´s of course been very sweet and looks extremely intelligent like his mother. And very handsome like his father. Enjoy.

 

óli og pabbiLilliIMG_3535IMG_3531


IMG_3523IMG_3516

 IMG_3514IMG_3513IMG_3508


950 kall í bíó

Ég fór í bíó í gærkvöld. Nýtti mér 2 fyrir 1 tilboð sem var þó takmörkum háð, gat ekki séð vin minn Borat en fór í staðinn á vin minn Nicholson sem sýnir fína takta í The Departed. En miðinn kostaði 950 krónur. Ég hélt að það væri svona langt síðan ég hefði farið í bíó að miðinn hefði hækkað en stelpan í miðasölunni sagði miðann dýran af því sýningin væri stafræn. Einmitt það. Nú bað ég ekki Sam-bíóin um að taka upp stafræna tækni og sætti mig við að horfa á gamaldags bíó en samt borga ég 100 krónur aukalega fyrir fjárfestingu Sam-félagsins. Á ég að borga hærra verð þegar þeir skipta um sæti líka eða flísa gólfið við sjoppuna? Þetta er náttúrulega bara frekar augljós verðhækkun sem á að afsaka með nýrri tækni. Ég er nokkuð viss um að bráðum mun kosta 950 á allar myndir hjá Sam og þá sama hvað salurinn er lítill og lélegur.061002-2

Annað skrítið. Ég keypti mér kort í World Class. Þar stendur manni til boða að vera í ótímabundinni áskrift (þarf að segja upp með hálfs árs fyrirvara) og sleppa þannig við hækkanir vegna vísitölubreytinga. Nú spyr ég í fávísi minni: Hækkar verð á líkamsræktarkortum yfirleitt út frá vísitölu? Neysluverðs þá væntanlega. Eða er þetta lúmsk leið til að halda fólki í áskrift? Það gleyma sjálfsagt margir þessum fyrirvara á uppsögn og verða áskrifendur til margra ára. Annars er WC fínn staður utan tveggja hönnunarmistaka: Allt of litlir skápar í búningsklefum (ca. metri á hæð) og flughálar flísar á gangi á leið út í sundlaugar. Líkur þar með neytendapistli.


Borat er klón!

Ég var búinn að steingleyma vini vors og blóma, honum Mahir Cagri. I KISS YOU!!!!!  Mér sýnist Cohen tilneyddur að borga Cagri fyrir persónuna, það er deginum ljósara að Borat og Cagri eru tvíburar. Nema hvað að annar er frá Kasakstan og hinn frá Tyrklandi. Smáatriði.... Hinn raunverulegi Borat
mbl.is Mahir Cagri sakar Cohen um að stæla sig í hlutverki Borat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband