Færsluflokkur: Sjónvarp
3.1.2007 | 16:52
Að fatta ekki djókið
Jafnöruggt og það er að nýtt ár gangi í garð er það að fólk röfli og væli yfir áramótaskaupinu. Skaupið er auðvitað furðufyrirbæri og séríslenskt. Gamanþáttur sem allir landsmenn horfa á og krefjast þess að sé fyndinn allan tímann, ef einn brandarinn virkar ekki er skaupið ónýtt. Skelfilegt hlýtur að vera að fá það verkefni að skrifa skaupið. Eitt ráð er til handa þeim sem eiga erfitt með að horfa á skaupið án þess að hlæja stanslaust frá upphafi til enda: Drekka áfengi. Á þriðja bjór eru öll skaup fyndin.
Mér fannst skaupið núna fínt, flest var þar fyndið og svartur húmor. Svo virðist sem fólk eigi miserfitt með að átta sig á því hvenær húmor er svartur, hvenær hann flokkast undir kaldhæðni. Ég lá uppi í rúmi með nýfæddan son minn í gærmorgun og fylgdist með Sirrý og Heimi tala um allt og ekki neitt, þar á meðal skaupið. Heimi fannst það ekki gott, ekkert fyndið. Hann á rétt á því auðvitað. Sirrý fannst það gott enda var hún í því. Svo hringdu fúlir Íslendingar í þau og sögðu harmasögur af því að þeir hefðu ekki hlegið að skaupinu. Hræðilegt þegar það gerist greinilega og áramótin bara ónýt.
,,Það var verið að gera grín að öldruðum og öryrkjum," kveinaði kona ein. Sirrý reyndi að benda henni á grínið sem fælist í fordómum persónunnar sem Jón Gnarr lék, enda fordómar oft í fréttum seinni hluta árs, t.d. tengdir innflytjendum. ,,Nei, það var bara verið að gera grín að öldruðum og öryrkjum," sagði konan og minnti óneitanlega á eina af kerlingunum sem Jón Gnarr lék svo oft af stakri snilld í Fóstbræðrum. Fleiri hringdu inn, öllum fannst allt ómögulegt. Sumum fannst vanta eftirhermur, svona Spaugstofugrín sem þeir fá vikulega allt árið.
Ég segi bara húrra og áfram við hina nýju kynslóð Skaupara sem skrifaði að þessu sinni. Skaupið var afar íslenskt og mörg góð ádeilan þar á ferð. Að mínu mati stóð atriði með Þorsteini Guðmunds upp úr þar sem gert var grín að Orkuveituauglýsingunni frægu. Þar var þarft grín á ferð og hefði mátt ganga lengra og láta fleiri finna fyrir því. Þá var Baugsmyndin góð sem og Apaplánetu-byrjunin. Panta svona skaup fyrir næstu áramót.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2006 | 11:14
Veruleikafirring í Kastljósinu
Ég get ekki staðist þá freistingu að röfla og hneykslast aðeins yfir nýlegum umfjöllunum í Kastljósinu. Áður en röflið hefst vil ég hins vegar hæla Kastljósi fyrir bættan þátt og oftast nær afar vel unnið efni. Viðtölum við móður Ívars Arnar, sem kallar sig Dr. Mister, og svo Misterinn sjálfan hefði mátt sleppa hins vegar. Þó varpa þau áhugaverðu ljósi á það hvernig fólk getur hreinlega snúið öllu á hvolf og kennt öllum öðrum en sjálfum sér um hegðun sína.
Ég man glöggt eftir forsíðu eins tölublaða Séðs og heyrðs hér um árið þar sem hárgreiðslumaður sagðist hafa ,,orðið fyrir framhjáhaldi", eins og það sé einhver sjúkdómur sem smitast milli fólks án þess það fái nokkuð við ráðið. Eins er það með Ívar Örn og móður hans. Þau kenna fjölmiðlum og íslensku samfélagi um að hljómsveit Ívars, Dr. Mister and Mister Handsome, syngi um hórur og kókaín og niðurlægingu kvenfólks, af því það sé það sem fjölmiðlar vilji eða ætlist til af þeim. Halló!! Hvurslags bull er þetta? Nú voru þessir gaurar, Mister og Handsome, ekki til umfjöllunar áður en þeir ákváðu að gera plötu um hórur og eiturlyf og nota sjálfir eiturlyf, er það nokkuð? Er í alvöru verið að segja að ef sama tónlist hefði verið samin en með textum um blóm og býflugur, að þá hefðu fjölmiðlar ekki veitt þeim athygli? Var ekki fyrst fjallað um tónlistina sjálfa, að þar væri góð danstónlist á ferð? Móðir Ívars segir eiturlyfjaneyslu hans gerða að söluvöru í fjölmiðlum og kennir þeim um að gera hana spennandi. OK, kannski hefðu fjölmiðlar átt að fatta að veita þessum gauri ekki athygli. En hver biður hvern um athygli? Er Ívar ekki fullorðinn maður? Á hann ekki sjálfur að stjórna því hvort tekin eru við hann viðtöl? Er það ekki hans ákvörðun að láta taka myndir af sér fyrir Bleikt og Blátt eins og hann sé að leika í klámmynd?
,,Þetta er húmor skilurru hjá okkur skilurru," sagði Ívar í Kastljósi. Okkur finnst þetta fyndið segir hann. Nú? Ef þetta er fyndið, þ.e. að vera á kafi í eiturlyfjum og fara niðrandi orðum um kvenfólk, hvað eru þá fjölmiðlar að gera Ívari? Er þá ekki verið að veita honum útrás fyrir grínið? Dr. Mister er tilbúin persóna að sögn Ívars. Kann að vera. En hverjum er það að kenna að fólk byrjar að neyta eiturlyfja? Neytandanum sjálfum, nema hann hafi verið þvingaður til að taka eiturlyf. En málið er kannski að fólk hefur ekki gert greinarmun á Ívari og Dr. Mister. Mér finnst allt í lagi að fjalla um að hann sé farinn í meðferð, þá átta kannski unglingar sig á því að kókaín er ekkert grín heldur banvænt eitur. Umfjöllunin bendir á víti til varnaðar.
Ég get ekki séð að fjölmiðlar hafi búið neitt til. Ívar var þarna, syngur um kókaín og druslur og er sjálfur í vímu, er þetta ekki umfjöllun um mann eins og hann er? Myndi Bubbi Morthens kenna fjölmiðlum um sína eiturlyfjaneyslu á árum áður? Að sjálfsögðu ekki, Bubbi hefur margoft rætt um sína neyslu af einlægni og varað fólk við eiturlyfjum. Ívar hefði átt að nota þá fjölmiðlaathygli sem honum var færð með Kastljósinu til að vara fólk við eiturlyfjum. ,,Fólk er búið að hérna setja það þannig fram að Ívar Örn Kolbeinsson, sem er ég, sé, þúveist, eins og Dr. Mister er, sem er karakter sem ég er búinn að búa til," segir Ívar. ,,Ég vill ekkert vera fucked-up á eiturlyfjum allan daginn," segir Ívar. Hann sé þó að ,,bakka útúr" því, sem hlýtur að þýða að hann ætli í meðferð. Það er þó alla vega gott. 
En út í tónlistina, eða öllu heldur textana. Hvernig væri nú að vera frumlegur einu sinni og herma ekki eftir bandarískum röppurum með sína mellu-og-dóp texta og fara aðra leið? Hvernig væri að koma smá skapandi hugsun í textana? Er þetta fyndinn brandari, að þykjast vera dópaður og líta á konur sem druslur? Er eitthvað þreyttara til í dag? ,,Við setjum ljósan punkt inn í dimman heim," segir Ívar. Ha? Dimman heim? Af hverju fjallar hann þá ekki um þennan dimma heim og finnur ljósa punkta í tilverunni? Nú bíð ég spenntur eftir næstu plötu, finnst reyndar tónlistin glimrandi hjá þeim og hrósa þeim fyrir. Kannski verða textarnir þar um kynskiptiaðgerðir, og má þá búast við því að Ívar fari í aðgerð til að fylgja plötunni eftir.
Önnur vitleysan í Kastljósinu er svo um photoshop-aðgerðir á konum. Allir voða undrandi yfir því að fyrirsætur séu togaðar og teygðar og lagaðar til þar. Bíddu, er ekki árið 2006 núna? Ég hélt að allir vissu að þetta hefur verið gert frá því Photoshop kom á markaðinn. Greinilega ekki. Tískumyndir, tískublöð, tískuföt, meiköpp og allt þetta er auðvitað eins og flóðbylgja sem gengur á hverjum degi yfir konur. En vita ekki allir að þetta er tilbúinn heimur? Halda konur í alvöru að yngingarkrem yngi þær? Halda þær að allar konur séu mjóar nema þær? Auðvitað ekki. Þess vegna ætti fólk að hætta að kenna auglýsingum og fjölmiðlum um þar líka, um óánægju kvenna með sjálfar sig. Óánægjan hlýtur fyrst og fremst að koma að innan. Ef þú segir konunni þinni reglulega að hún sé falleg hlýtur hún að verða glaðari og ánægðari með sjálfa sig. En þessi umræða kemur upp aftur og aftur, alltaf verið að finna upp hjólið. Tísku- og snyrtiiðnaðurinn verður áfram til. Það sem konur geta gert til að sporna við þessu er að kaupa ekki tískublöðin eða föt sem sniðin eru á hrífusköft. Bara hunsa þetta, eyða ekki mörg þúsund krónum í eitthvað krem sem gerir örugglega sama gagn og gamla góða Nívea, sem kostar tíu sinnum minna.
Heiðar snyrtir kom í Kastljós og ræddi þetta enda einn mesti kremmeistari Íslands. Heiðar gerði þau mistök að ýja að því að íslenskar konur mættu þakka fyrir að þurfa ekki að vera eins og konur í Sádí-Arabíu, huldar að öllu leyti utan glugga til að sjá út. Heiðar var þó dipló og sagði að trúin flytti fjöll. Það er einmitt mergur málsins. Konur vilja trúa því að kremið virki, eyði hrukkum og appelsínuhúð. ,,Það er verið að brjóta konur niður markvisst til að selja þeim eitthvað og það svínvirkar," sagði Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins. Það gæti verið rétt. En er ekki eina leiðin að konur geri uppreisn og sniðgangi þessa aðila sem haldið er fram að brjóti sjálfsímynd þeirra niður? Það hlýtur að vera ljóst að krembarónar heimsins hætta ekki allt í einu að stunda þessar auglýsingaaðferðir. Fyrst þarf eitthvað að gerast.
Að lokum, mynd af hinni ógurlega sjálfumglöðu Tyru Banks sem stjórnar þætti þar sem keppt er í því að vera besta fyrirsætan. Tyra vill að allar konur séu eins og hún en hefur sýnt og sannað að hún er flagð undir fögru skinni. Hvet alla til að sniðganga það drasl sem þáttur hennar er. Annars heldur Banks áfram vitleysunni.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)





